Besta bloggið í heimi "nei djók"
07.11.2007 15:06:25 / ellagudda

óvissusýning fm 957 í kvöld

Hæ hæ allir:)

Er að fara með Óla í kvöld á óvissusýningu með fm 957 og ég get ekki beðið. Samt svo tíbískt ef þetta er svo bara einhver teiknimynd hahaga....  nei nei þá fyrst byrja ég að öskra ef svo er sko....  ;) En ég er mjög spennt og Óli líka. 

En allavega þá vil ég bara þakka öllum sem eru búnir að kvitta í gestabókina:)

Heyrumst á morgun betur ef ég verð lifandi haha... kannski dey ég úr hræðslu hehe

bæ bæ á meðan.

Elín

 

Eitt ljóð hér eftir mig:)

Draumur

Ég vaknaði um morguninn og sá þá út um gluggan

hvað himininn var fallegur og morgunbirtan skær,

þá sá ég manninn labba sem ég hafði hitt,

á ballinu um daginn sem ég hafði kysst.

En maðurinn sá mig ekki

þá varð ég vonskvikin

en ég ætla að kynnast honum betur

því að hann mig hafði kysst.

Ég vona að hann þekki mig aftur

því ég elska þennan mann

svo ég hitti hann aftur á sama stað.

Ég sá hann við barinn og labbaði

að honum,

en þá var hann farinn

ég missti af honum.

Nú kíki ég út um gluggan

í von um að sjá hann aftur,

en ég sá hann aldrei aftur.

bara í draumum mínum.

Elín 13.10.2007

Solla skrifaði
þett er ótrúlega flott hjá þér sæta mín eins og þau öll, skemmtið ykkur rosa vel í kvöld,hlakka til að heyra frá því koss&knús
NN skrifaði
Ef væri ég konungur krýndi ég þig, kona mín, drottningu heimsins,. því fegurð þín ætíð fellt hefur mig; þú fjársjóður himingeimsins. Fegurstu perlur fölna hjá þér, fölna og hverfa í skuggann. Lífs af þér bjartasta ljósið er, er lýsir upp ástargluggann. Dýrð þér eilíf, drottningin fróma; dásemdir falli þér í skaut. En myndu hann sem mun þig æ róma, mig sem æva fyrir þér laut. Blessa þú mig æ blíðasta meyja og berðu glöð hér sælunni mót því fyrir þig skal ég fúslega deyja, fyrir þig mín dýrlega snót. Mitt hjarta er fallið, þér falið í höndum, fegurð þín æ heillaði mig. Hér einn ég er fanginn í ástarböndum því eina, kæra vina, mig dreymir um þig.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

RSS tengill