Kæri jóli, mig langar geðveikt í nýjan bíl og nýtt hús... hehehe
já gaman að þessu lífi... en svona er þetta, endalaust gaman og skemmtilegt að lifa og sonna, ég fór í Kringluna með mína hele famelien og ég keypti mér loksins eitthvað sem ég sjálf valdi... og sem enginn þurfti að gefa mér haha ég fæ nefninlega svo oft föt og skó gefins frá mínun yndislegu systrum mínum
Er reyndar mjög heppin að eiga þær allar að maður,, díses hvað það væri leiðinlegt að eiga ekki neinar systur eða bræður... pælum í því...
En allavega þá var ég að fá póst frá Plúsinum og viti menn... ég var að vinna gjafabréf á Vínveitingastaðinn Vín og skel, út að borða fyrir tvo
geðveikt sko... og var einmitt að fá póst frá Ruth systir um verndarengil sem færir manni lukku og það greinilega virkar svona vel haha
En svo var ég í viðtali hjá yfirmanni mínum, ég er svo rosalega ánægð í ivnnunni og er svo þakklát fyrir að hafa boðist þessi vinna aftur og ég vil bara segja að ég á besta yfirmann í heimi
Það er bara allt frábært, ég stend mig vel og hann er rosa ánægður með mig og svo framvegis.
Jæja ætla hafa þetta nóg í bili þangað til næst..
og endilega skrifið í gestabókina mína plís.
kveðja Elín