Góðan dag kæra fólk...
Ég hef voða litið að segja, það er búið að vera svo mikið að gera í vinnunni að ég hef ekki haft tíma til að blogga þannig að ég vona að þið fyrirgefið mér hehehe...
En annars hef ég svon aðeins verið að skrifa nokkur ljóð.
Ætla að leyfa ykkur að sjá eitt hér eftir mig sem ég samdi í gær.
Það heitir "Jóladagur"
Dimmt er orðið úti
og veður kalt
þar sem fuglar sofa úti
en þeim er ekki kalt.
Nú fer að líða að jólum
börnin hlakka til
það verður gaman að lifa
hjá okkur þessi jól.
Ljósin eru falleg
sem skín í snjóinn fagra
komið er að kveldi
allir fara í ró.
Nú vakna allir
kominn nýr dagur
jóladagur er kominn
það verður dýrlegur dagur.
Börnin dansa
í kringum jólatréð
mikið er það gaman
að fylgjast með þeim tveim.
Við borðum jólamat
og opnum pakkana
börnin hamingjusöm
með alla pakkana
Það er svo gaman að sjá
hve margir eru hér
sem ég elska, dýrka og dá
það er yndislegt hér.
Senn fer að líða að lokum
yndislegu jólanna
og brátt líður að gamlárskveldi
fögnuði á nýársdag.
Elín 27/11.07
En allavega þá vildi ég bara aðeins leyfa ykkur að fylgjast með mér hehe
ég blogga kannski betur í kvöld þegar ég er komin heim.
kveðja Elín