Besta bloggið í heimi "nei djók"
30.12.2007 12:21:48 / ellagudda

Næstsíðasti dagurinn á árinu 2007

Góðan dag gott fólk.

Í dag er næstsíðasti dagurinn af árinu 2007.. pælum í því hversu fljótt þetta ár er búið að líða... en svona er þetta.

En það er bara gott mál:)

En við erum búin að hafa það ágætt bara, er reyndar ekki alveg búin að ná mér eftir þessa ógeð magapest en allt að koma sko.;)  Allir eru hressir og kátir og Guðni var fyirliði í fótboltakeppni í gær en þar var hann að keppa í marki nátturulega og þeir töpuðu fyrsta leik með einu marki og seinni leik unnu þeir að sjálfsögðu hahahah:lol: hey þetta er nú einu sinni sonur minn sko.....

Ég hef nú svo lítið að segja þessa daga þannig að ég blogga á morgun eða hinn.

Hafið það mjög gott yfir áramótin og vonandi verður árið sem er að koma jafn skemmtilegt og ljúft og árið sem er að líða.

Jæja kveð að sinni og bið að heilsa öllum og verið nú öll stillt yfir áramótin.....

kveðja Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 12:20:54 / ellagudda

Gleðilega hátíð

Góðan dag kæru vinir og vandamenn og gleðilega hátíð..

 

Vildi bara óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Hlakka til að sjá alla á nýju og góðu ári og vonandi verður árið sem er að koma jafn gott og gæfuríkt og árið sem er að líða.

 Við fjölskyldan höfum haft það mjög gott fyrir utan ælu-og magapest en nú hafa það allir gott eru að batna..

Ætla nú ekki að hafa það lengra núna en skrifa svo fljólega aftur og nú verð ég að vera duglegri að skrifa.... hehe gengur ekki sko..

Bið að heilsa öllum og hlakka til að sjá alla á nýju ári..

Hafið það gott öllsömul og farið vel með ykkur því þið eigið það öll skilið.

Knús og kossar til allra...

Kveðja Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 11:02:02 / ellagudda

Helgin framundan

Góðan dag allir saman

Það fer að styttast í helgina.... ég er svo forvitin um hvert við erum að fara að ég er að deyja hér skiljið þið.....  Það er spurning hvort maður fari út úr bænum eða hvort við verðum á hóteli hér í bænum... annars hef ég ekki hugmynd um það og fæ ekkert að vita fyrr en við erum komin á þennan dularfulla stað hahahah...:lol:

Reynisholt leikskólinn krakkana er 2 ára í dag og í tilefni bauð leikskólinn öllum foreldrum í kaffi með börnunum og við gátum bæði farið.  Þeim fannst það rosalega spennandi að bæði mamma og pabbi gátu komið sko... :haha::P

Það gengur bara rosa vel í vinnunni eins og venjulega, erum ein heild eins og má orða það hér og það nátturulega gerir það að verkum að allir vinna betur og verða sáttari við sig og allir  bara ánægðir.  Ég er rosalega ánægð hér hjá Símanum:)))

Jæja nóg í bili þangað til á eftir heheheh

bæ á meðan

love u all:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 15:00:53 / ellagudda

Góðan dag

Góðan dag kæra fólk...

Ég hef voða litið að segja, það er búið að vera svo mikið að gera í vinnunni að ég hef ekki haft tíma til að blogga þannig að ég vona að þið fyrirgefið mér hehehe...

En annars hef ég svon aðeins verið að skrifa nokkur ljóð.

Ætla að leyfa ykkur að sjá eitt hér eftir mig sem ég samdi í gær.

Það heitir "Jóladagur"

Dimmt er orðið úti

og veður kalt

þar sem fuglar sofa úti

en þeim er ekki kalt.

 

Nú fer að líða að jólum

börnin hlakka til

það verður gaman að lifa

hjá okkur þessi jól.

 

Ljósin eru falleg

sem skín í snjóinn fagra

komið er að kveldi

allir fara í ró.

 

Nú vakna allir

kominn nýr dagur

jóladagur er kominn

það verður dýrlegur dagur.

 

Börnin dansa

í kringum jólatréð

mikið er það gaman

að fylgjast með þeim tveim.

 

Við borðum jólamat

og opnum pakkana

börnin hamingjusöm

með alla pakkana

 

Það er svo gaman að sjá

hve margir eru hér

sem ég elska, dýrka og dá

það er yndislegt hér.

 

Senn fer að líða að lokum

yndislegu jólanna

og brátt líður að gamlárskveldi

fögnuði á nýársdag.

Elín 27/11.07

En allavega þá vildi ég bara aðeins leyfa ykkur að fylgjast með mér hehe

ég blogga kannski betur í kvöld þegar ég er komin heim.:)

kveðja Elín

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 09:15:21 / ellagudda

Skemmtilegt að pakka...

Við vorum búin að pakka öllu úr eldhúsi, stofu og einhverju öðru,, en við erum búin að vera að dunda okkur við það að taka uppúr þeim aftur í annað sinn heheh já ég held að maður hlæji bara að þessu því að það er ekki hægt að hugsa eitthvað neikvætt því að okkur líður ekkert betur við það... þannig að hugsum bara jákvætt og þá liður öllum betur og allt verður auðveldara....  Ég er allavega á þeirri skoðun..

En annars var helgin róleg þannig, vorum heima yfir föstudagskvöldið, á laugardeginum fórum við í kaffi til tengdó...  Díses nú er ég komin með eitthvað minnisleysi því ég man ekki hvað við gerðum eftir það hahaha... við gerðum eitthvað ég man það sko... en hvað það var hmmmmm....:$

En allavega á laugardagskvöld fór ég og hitti Jónsa og Hlyn til að skipuleggja afmæli okkar vinanna og það var bara mjög gaman, vorum að ræða gamla tíma og sonna heheh... en það verður örugglega fjör á afmælinu okkar allra... :)

Á sunnudaginn var nú ekkert kaffi hjá tengdó þannig að við vorum bara róleg fram til 13, þá fór Óli með Lilju Rós í bíð á Hákarlabeitu:) og við tvíburarni ætluðum að fara til Höllu frænku en þá var hún og Helga vinkona hennar að gera jólahreingerningu þannig að ég hugsaði mér að það væri tilvalið að kíkja til Drafnar og Bergþóru, en þá voru þær á leið út á flugvöll með Bíli mömmu og pabba, þá ætlaði ég að kíkja á Sólrúnu frænku, nei þá er hún í sumarbústað. Ok nú var ég alveg farin að halda að ég ætti bara ekkert að fara sko, en svo ætlaði ég að ath hvort að Ásgerður væri heima en þá reyndar var hún löglega upptekin hehe hún var að læra þannig að ég ætla að reyna að hitta hana í des.  Jæja hvern á ég nú eftir já alveg rétt, ætlaði líka til Jóhönnu en þá var hún heldur ekki heima.  Ég var farin að halda að ég ætti bara að vera heima hjá mér sko.... en þá fór ég bara og náði í Guðna og við fórum og fengum okkur ís í Vesturbæjarísbúðinni heheh það er besti ís held ég sem ég hef smakkað.... Mæli með henni sko...

 Fórum svo öll familian út að borða á Ruby tuesday og átum yfir okkur, vá ég held ég sé enn södd sko... :S

Vorum bara svo róleg yfir kvöldið, Guðni fór í bíó með vinum sínum og við höfðum það bara kósý við Óli....;)

Já já svo þið segið það já... en sko ég er að vinna í því að koma með fleiri myndir hér inn en það er svo lítill tími sem ég get farið inná síðuna, ekki nema í vinnunni ef það er lítið að gera en ég á nátturulega ekki mikið af myndum þar sko:haha:

En þið verðið bara að vera þolinmóð elskurnar mínar og þetta kemur allt saman í lokin...

Jæja ég er hætt að blaðra og ætla að fara og vinna;)

Heyrumst fljótlega allir......

Elín;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 12:04:50 / ellagudda

vá hvað ég er reið

Kona sveik okkur AFTUR í annað skiptið.  Við fáum ekki íbúðina,, löng saga nenni ekki að segja hana núna eins og er en málið er að hún var ekki nógu sátt við vinnubrögð bankans eða eitthvað og hún skuldar of mikið af íbúðinni til að leigja hana út, ég sagði henni í gær þegar hún var í efa, að ef hún myndi svíkja okkur aftur þá myndum við lenda á götunni, en nú hringir hún áðan og viti menn, hún er hætt við!!!! Ég spurði hana "Ertu semsagt að svíkja mig aftur og vitandi það að við lendum á götunni" já því miður segir hún bara og ég var svo reið að eg skellti á hana, gat ekki talað meira við hana, við vorum búin að redda 480.000 kr í bankaábyrgð sem við þurftum sjálf að skaffa inná bókina og svo kemur eitthvað svona. Svo fyrir 2 dögum var hringt í okkur vegna íbúð sem er í Marteinslaug og við vorum búin að fá samþykki frá þeim eigendum en sögðum nei við þau vegna þess að við "héldum" að við værum komin með öruggt húsnæði.  En reyndi að hringja þau en þau eru stödd erlendis eins og er þannig að vonandi sjá þau að ég hafi hringt.

Jæja farin í mat og læt ykkur vita þegar ég veit meira

Ótrúlegt hvernig fólk getur hagað sér og komið fram illa, ekki myndi ég koma svona fram við aðra, sama hver er.....

 Elín


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 08:58:00 / ellagudda

Mikið var

að ég get skrifað hehe, er búið að vera svo geðveikt að gera hjá mér bæði í vinnu og heima.  Við erum að flytja aftur heheh loksins fáum við íbúð í Grafarvogi, rosaflotta í Gullengi.  Hún er 130fm minnir mig og er 5 herb, þannig að Lilja Rós, Guðni og tvíburarnir og nátturulega Guðni eru í sér herbergi:D það verður vonandi mjög gaman fyrir þau, og okkur líka nátturulega að sjá þau splittast svona í fyrsta skipti hehe.  En annars er svo sem ekkert að frétta svona, nema hvað mamma og pabbi eru í USA og þegar þau eru á leið út þá týndi pabbi veskinu sínu í flugvélinni og það var sko mikið stress maður, díses ekki myndi ég vilja lenda í þessu og í USA í þokkabót, en allavega, það er alltaf þannig þegar mamma og pabbi fara út þá sendir pabbi okkur systrunum alltaf sms til að leyfa okkur að fylgjast með og sonna og það er einmitt alltaf svo gaman að sjá hvernig pabbi orðar þau hehehe, eins og td. þá gerir hann soldið grín af sjálfum sér..

Dæmi:Erum að keyra til fredriksborgar, Lifi eins og blóm í eggi því mamma borgar hahahah hann er svo fyndinn og svo líka næsta. Erum að rústa Wallmart, næsta skotmark er Target. Mamma borgar kv, pabbi

hahahaha mér finnst hann æði.... En svo verð ég nú að bæta því við að veskið hans fannst en pabbi er að fíla það í botn að mamma skuli borga heheh..

jæja nóg með það, svo nátturulega líður að því að ég og óli förum á hótel og enn veit ég ekki hvert híhí fyrir þá sem ekki vita af hverju við erum að fara þá er það vegna þess að við eigum 10 ára afmæli 1.des og Óli pantaði hótel frá 30nóv-02.des:) og við erum búin að plana meira að segja pössun fyrir öll börnin:) Ruth systir ætlar að vera með Birtu Líf og Bergþóra með Óla á föstudagskvöldið til mið laug og svo tekur Ruth við Óli þá hehe og svo fer Lilja Rós með mömmu og pabba í sveitina:)) Guðni verður líklega hjá Ruth, var reyndar eftir að tala við hana en það hlýtur að vera í lagi, en þetta planaði Óli alveg aleinn og ég er ógeðslega spennt því ég veit ekkert hvert við erum að fara sko:lol:

jæja verð að halda áfram að vinna.. hey!!! eru ekki allir duglegir að kvitta hjá mér???

Vildi sýna ykkur eitt mjög fyndið... farið inná þessa slóð til að horta og hafið hljóð á takk hehe

 http://youtube.com/watch?v=MugQDD2FcKQ

 

hehe elska ykkur öll og verið þið góð við hvort annað... komið fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við ykkur. Elskið lífið því þið lifið því ekki nema einu sinni......

Heyrumst fljótlega

kveðja Elín


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 21:48:59 / ellagudda

Reynum bara að hugsa jákvætt

þó að maður sé að drepast úr kvefi og ógeði hehe en mér tekst þó að skrifa í dagbókina mína...  en hvað segið þið annars gott??? Gott að sjá að það eru nokkrir búnir að skrifa í gestabókina mína en það vantar þó nokkra enn sko..... hhhmmmm 8)  nei nei þetta er allt í lagi sko... en allavega þá er lítið að frétta svo sem því að það gerist nú lítið þegar maður er veikur en ég ætla nú að reyna að kíkja í vinnuna á morgun ef ég er ekki of slöpp.  Það kemur nú allt í ljós í fyrramálið bara.... nú svo er foreldraviðtal í skólanum hans Guðna á morgun og kemur í ljós hvort hann sé duglegur og hlýðinn heheh nei ég segi nú bara svona,, hef engar áhyggjur svo sem af honum, hann er duglegur strákur.  En svo eru hin 3 bara svo góð og yndisleg þessa dagana að maður veit varla af þeim:haha: annars er ekkert að frétta... hef ætlað að skrifa nokkur ljóð en finn ekki bókina af öllum ljóðunum sem ég hef samið :( er búin að gera dauðaleit en finn hana bara ekki... hún er einhvers staðar í kassa niðri í kjallara... tíbískt:klikk:

jæja nóg í bili.... verð að fara að gera eitthvað maður.,,,, heheh já alveg rétt, ætlaði að fara uppí að sofa heheheh nei djók... jæja ég er hætt þessu bulli,,,, þangað til næst;)

 Love all of you my wonderful friends and famaly

kveðja Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 09:32:13 / ellagudda

veik heima:(

Góðan dag.

Í dag er ég heima VEIK ömulegt, en annars er allt fínt að frétta... Við Óli fórum á Vín og Skel í gær að borða mmmmm það var æði... ég vann gjafabréf uppá 10.000 kr í Plúsinum þannig að við ákvöðum að skella okkur bara í gær og sáum sko ekki eftir því heheh..

 Allavega þá er annars ekkert að frétta þannig séð, ég held að ég skrifi eitthvað meira bara næst.... ein hugmyndasnauð.......:D:$

þangað til næst.... farið vel með ykkur og munið... elskið lífið og strjúkið kviðinn hahahh djók ógeðslega fyndin

hey skrifið í gestó annars..... nei djók.

jæja nú er ég farin að sofa og reyna að ná þessu ógeði úr mér... bæ bæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 09:43:46 / ellagudda

30 Days of Night

það var æði í óvissusýningunni á miðvikudagskvöldið:) Þegar við komum í bíóið var strax komin röð af æstu fólki sem vildi fara á óvissusýningu alveg eins og ég og hugsuðu líka örugglega alveg eins og ég,,, hvað skildi vera að sýna....  en svo var byrjað að hleypa inn en þá voru bara 5-6 hleypt inn í einu, svo kom röðin að okkur... við fórum inn í kolsvarta myrkur og það eins sem við gátum séð voru blikkandi ljós sem komu bara stundum inná milli, allt í einu sáum við mann alveg lengst í horninu lítandi út eins og einhver æi þið vitið eins og "Dauðinn" og öskraði á fólk sem fór fram hjá honum hahaha það var ólýsanlega fyndið að heyra öskrin í öllum stelpunum heheheh.... það voru kerti út um allt og þetta var bara virkilega flott hjá þeim strákum frá fm 957:) En svo var það myndin... vá ég held ég hafi nú bara aldrei séð svona mynd þar sem ég er spennt allan tíma, hún er spennandi allan tíma hverja mínútu og hverja sek..... en ég er allavega ekki fyrir vonbrigðum skal ég segja ykkur hrollvekjufanið sjálf...:):D  og ég svaf nú bara eins og steinn eftir þessa sýningu haha.

Sjá sýnishorn úr myndinni http://www.midi.is/bio/10/540/

Er heima með börnin eins og er, það er lokað í leikskólanum hjá litlu krílunum mínum... þannig að við ætlum bara að hafa það eins gott og gaman og við getum í allan dag:D  Það er nú ekki svo mikill tími sem maður hefur orðið með  börnunum sínum þannig að það er eins gott að nýta hvert tækifæri sem maður hefur heheh..

 

jæja gott fólk ætla að hafa þetta nóg í bili, nenni ekki að væla meir nei djók  en allavega þangað til næst......

 

hafið það gott um helgina,,, "PÍS"

Elín


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 15:06:25 / ellagudda

óvissusýning fm 957 í kvöld

Hæ hæ allir:)

Er að fara með Óla í kvöld á óvissusýningu með fm 957 og ég get ekki beðið. Samt svo tíbískt ef þetta er svo bara einhver teiknimynd hahaga....  nei nei þá fyrst byrja ég að öskra ef svo er sko....  ;) En ég er mjög spennt og Óli líka. 

En allavega þá vil ég bara þakka öllum sem eru búnir að kvitta í gestabókina:)

Heyrumst á morgun betur ef ég verð lifandi haha... kannski dey ég úr hræðslu hehe

bæ bæ á meðan.

Elín

 

Eitt ljóð hér eftir mig:)

Draumur

Ég vaknaði um morguninn og sá þá út um gluggan

hvað himininn var fallegur og morgunbirtan skær,

þá sá ég manninn labba sem ég hafði hitt,

á ballinu um daginn sem ég hafði kysst.

En maðurinn sá mig ekki

þá varð ég vonskvikin

en ég ætla að kynnast honum betur

því að hann mig hafði kysst.

Ég vona að hann þekki mig aftur

því ég elska þennan mann

svo ég hitti hann aftur á sama stað.

Ég sá hann við barinn og labbaði

að honum,

en þá var hann farinn

ég missti af honum.

Nú kíki ég út um gluggan

í von um að sjá hann aftur,

en ég sá hann aldrei aftur.

bara í draumum mínum.

Elín 13.10.2007


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 09:25:22 / ellagudda

Dagur 2.

Kæri jóli, mig langar geðveikt í nýjan bíl og nýtt hús... hehehe:) já gaman að þessu lífi... en svona er þetta, endalaust gaman og skemmtilegt að lifa og sonna, ég fór í Kringluna með mína hele famelien og ég keypti mér loksins eitthvað sem ég sjálf valdi... og sem enginn þurfti að gefa mér haha ég fæ nefninlega svo oft föt og skó gefins frá mínun yndislegu systrum mínum;) Er reyndar mjög heppin að eiga þær allar að maður,, díses hvað það væri leiðinlegt að eiga ekki neinar systur eða bræður... pælum í því...

En allavega þá var ég að fá póst frá Plúsinum og viti menn... ég var að vinna gjafabréf á Vínveitingastaðinn Vín og skel, út að borða fyrir tvo:lol: geðveikt sko... og var einmitt að fá póst frá Ruth systir um verndarengil sem færir manni lukku og það greinilega virkar svona vel haha:lol:

En svo var ég í viðtali hjá yfirmanni mínum, ég er svo rosalega ánægð í ivnnunni og er svo þakklát fyrir að hafa boðist þessi vinna aftur og ég vil bara segja að ég á besta yfirmann í heimi:) Það er bara allt frábært, ég stend mig vel og hann er rosa ánægður með mig og svo framvegis. 

Jæja ætla hafa þetta nóg í bili þangað til næst..

og endilega skrifið í gestabókina mína plís.;)

kveðja Elín


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 15:07:19 / ellagudda

jeminn komin með blogsíðu

hæ hæ allir og verið velkomin á mína fyrstu blogsíðu...

Ég heiti sem sagt Elín og er Guðnadóttir.  Ég á 4 börn á aldrinum 2,2,4 og elsti er 14.  Ég á yndislegan eiginmann sem heitir Ólafur og við erum búin að vera saman í 10 ár að verða og gift í 7 ár;) Ég er að vinna hjá Símanum sem þjónustufullltrúi og er rosalega ánægð þar enda toppvinna með toppstarfsfólki:lol:

Áhugamál mín eru ýmis td. finnst mér æðislegt að semja og skrifa ljóð eftir sjálfa mig. Mér finnst gaman að mála og teikna þegar ég hef tíma:lol:, vinir og fjölskyldan eru nátturulega í miklu uppáhaldi hjá mér. Auðvitað.... og svo má ekki gleyma að mér finnst mjög gaman að syngja...

hér er eitt sem heitir "Ég sé þig í ljósi"

Ég sé þig í ljósi og dimmu,

læt mig dreyma um að þú sért hér,

sé þig hvar sem er en þú ert ekki hér.

Ég vil vera þar sem þú ert,

hvar sem er, bara með þér, engum öðrum.

Ég elska þig af öllu hjarta, ávallt,

til mína ævidaga.

Ég vil ekki vera hér án þín,

ég sakna þín, þú ert svo fjær mér en

samt svo nær hjarta mínu.

Elín 17.10.2007

Þetta er smá væmið en samt sætt ef ég má segja sjálf frá hehe... ;)

En allavega plís skrifið í gestabókina mína... love you all my friends and I will never ever forget you.:P

 

Nóg í bili þangað til á morgun eða eitthvað heheh8)


» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill